Vellirnir
KA-svæðið
Á KA-svæðinu eru 12 vellir og þar fer keppni fram alla mótsdagana. Matsalur mótsins er í matsal Lundarskóla sem er við hlið KA-svæðisins og þar eru allar máltíðir bornar fram.

Bílastæði
Dalsbraut verður einstefnugata við KA-svæðið og er því hægt að leggja öðru megin í þeirri götu á meðan N1 mótinu stendur. Auk þess verður Þingvallastræti þrengt niður í eina akrein í báðar áttir í kringum KA-svæðið til að fjölga bílastæðum. Sjá mynd:
