Mótsstjórn
Mótsstjórn
Ágúst Stefánsson (agust@ka.is) - 849-3159
Sævar Pétursson (saevar@ka.is)
Arnar Gauti Finnsson (gauti@ka.is)
Til að hafa samband við mótsstjórn er þægilegt að senda tölvupóst á netfangið n1mot@ka.is eða í síma 462-3482.
Eftir að mótið hefst og þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá er um að gera að kíkja í mótsstjórnarherbergið hjá okkur.
Helstu upplýsingar um N1 mótið 2026
KA og N1 héldu fyrsta N1 -mót stúlkna á nýliðnu sumri og heppnaðist framkvæmdin afar vel. Það er metnaður beggja aðila að byggja enn frekar á þeim góða grunni næsta sumar. Sama umgjörð er á mótinu og á N1 móti drengja sem er stærsta fótboltamót landsins. Við lofum því glæsilegu móti!
Mótið hefst fyrri part föstudags og lýkur með úrslitaleikjum á sunnudeginum. Keppt er um öll sæti og fá því öll lið jafn marga leiki. N1 býður upp á glæsilega kvöldskemmtun og þá er heitur og góður matur í hádegis- og kvöldmat.
- Stór kvöldskemmtun er á laugardeginum
- Gist er í skólum í nágrenni við KA svæðið
- Frítt í bíó og frítt í sund alla dagana
- Heitar máltíðir alla dagana
- Sýnt verður beint frá mótinu á KA-TV
- Allir þátttakendur fá veglega gjöf frá N1
- Spiluð er forkeppni á föstudeginum
- Leiktími er 2 x 10 mínútur
- Spilaður er 5 manna bolti
- Verðlaun fyrir 1-3 sæti í hverri deild
Þjóðsöngur Íslands er leikinn fyrir úrslitaleiki mótsins sem skapar eftirminnilega stemningu
Þátttökugjald er 10.000 krónur á hvert lið sem félag skráir til leiks og skal tilkynna fjölda liða til mótsstjórnar fyrir 1. apríl 2026, eindagi þátttökugjalds er loks 1. maí 2026.
Mótið takmarkast við ákveðinn fjölda liða og hvetjum við því liðin til að skrá sig fyrr en seinna.
Mótsgjald fyrir hvern þátttakanda er 24.500 krónur og er eindagi mótsgjalds 15. júlí 2026. Þátttakendur eru leikmenn, þjálfarar og liðsstjórar. Hvert lið þarf að hafa að minnsta kosti einn liðsstjóra.
Helstu fyrirspurnum varðandi mótið svarar n1motstelpur@ka.is