Fara í efni

Leikreglur

Reglur N1 móts stelpna árið 2026 eru eftirfarandi:

  1. Leikinn er 5 manna bolti á mini-völlum, leiktíminn er 2×10 mínútur og leikhlé er 1 mínúta.

    Í leikjum er aldrei skráður meiri markamismunur en þrjú mörk. 

  2. Verði lið jöfn að stigum í riðlakeppni ræður:
  3. Innbyrðisveiðureignir
  4. Markamismunur
  5. Færri mörk fenginn á sig
  6. Hlutkesti 
  7. Verði jafntefli í undanúrslitum, bronsleikjum eða úrslitaleikjum skal framlengt um 2 x 3 mín. Sé enn jafnt eftir framlengingu skal varpa hlutkesti.

  8. Verði jafntefli í krosspili 5.-8. sæti og 9.-12. sæti skal varpa hlutkesti.

Séu athugasemdir við skráð úrslit leiks skal tilkynna mótsstjórn í síðasta lagi klukkustund eftir að móti líkur á föstudag og laugardag og 45 mín eftir leik á sunnudag.

Tekin er miðja eftir mark og upphafsspyrna í byrjun hálfleiks.
Heimilt að spyrna í hvaða átt sem er. 

Óheimilt er að skora mark beint úr upphafspyrnu og þegar miðja er tekin eftir mark. 

Ef boltinn fer beint inn í markið úr upphafspyrnu er markspyrna.

Ef markmaðurinn ver boltann inn í markið er hornspyrna.

Ef boltinn fer aftur fyrir endarlínu af sóknarliði:

Markmaður er bæði heimilt að kasta og sparka boltanum út. 

Kjósi markmaður að sparka boltanum út skal hann gera það af jörðinni, hvar sem er í vítateignum. 

Einnig má koma bolta í leik með því að rekja hann af stað.

Ef boltinn fer aftur fyrir endarlínu af varnarliði skal taka hornspyrnu eða knattrak.

Ef boltinn fer út fyrir hliðarlínu skal taka innspark eða knattrak.

Hornspyrna: Boltinn er lagður kyrr á horni leikvallarins og komið í leik með spyrnu. Það má bæði lyfta boltanum og skora beint úr hornspyrnu. Andstæðingurinn á að vera 2m frá spyrnu.

Innspark: Bolti er lagður kyrr á hliðarlínu og honum komið í leik með sendingu. Óheimilt er að lyfta bolta hærra en í hnéhæð með innsparki. Óheimilt er að skora beint úr innsparki. Andstæðingurinn á að vera 2m frá spyrnu.

Knattrak: Bolti er lagður kyrr á hliðarlínu og honum komið í leik með því að rekja boltann af stað frá hliðarlínu. Andstæðingurinn á að vera 2m frá spyrnu.

Aukaspyrna: Bolti lagður kyrr á hliðarlínu og honum komið í leik með að spyrna boltanum. Andstæðingurinn að vera í minnst 6 metra fjarlægð.

Skipti á leikmönnum skulu fara fram ca. á miðjum vallarhelmingi og mega fara fram hvenær sem er í leiknum.

Tilmæli:
Þjálfarar eru beðnir um að taka leikmann af leikvelli fyrir grófan leik eða óíþróttamannslega framkomu. Þjálfarar eru beðnir um að meta hvort leikmaðurinn komi aftur inná eða hvíli út leikinn.