Fara í efni

Mótsmyndbandið klárt - Takk fyrir samveruna á N1 mótinu!

Við viljum þakka ykkur fyrir frábæra samveru á KA-svæðinu á N1 mótinu, veðrið var kannski ekki að leika við okkur en stemningin og jákvæðnin var heldur betur til staðar og erum við í skýjunum með samveruna og strax farin að hlakka til næsta árs.
Fréttir
11.08.2026

Mótsmyndbandið er nú komið í loftið en Arnar Dór gerði myndbandið og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.

Alls léku tæplega 800 stelpur á mótinu í 108 liðum og má með sanni segja að það hafi verið virkilega skemmtileg stemning á svæðinu.

Sigurvegarar N1 móts stúlkna 2025:
Argentíska deildin: FH Ída Marín
Brasilíska deildin: Fjölnir Harpa Sól
Chile deildin: Álftanes Ásta Emilý
Danska deildin: FH Ingibjörg
Enska deildin: KA Elísa Bríet
Franska deildin: Afturelding 4
Gríska deildin: Fram Hildur
Hollenska deildin: Fjölnir Margrét Helga
Íslenska deildin: KFA Edda

Til baka í yfirlit