N1 mótið í beinni
KA-TV sýnir beint frá öllum leikjum á velli 8 á N1 mótinu í ár og er útsendingin aðgengileg öllum að kostnaðarlausu á YouTube rás KA-TV.
Við hvetjum félög til að fylgjast vel með hvort þeirra lið fái leik á sjónvarpsvellinum en fái ykkar lið leik á velli 8 er eina vitið að skrifa upp nöfn og númer leikmanna liðsins og koma þeim upplýsingum á strákana í útsendingarbílnum sem liggur við völl 8 svo unnt sé að lýsa leiknum með nöfnum leikmanna.
SMELLTU HÉR TIL AÐ OPNA KA-TV RÁSINA
Útsendingarnar verða svo að sjálfsögðu aðgengilegar áfram að móti loknu og því hægt að njóta aftur og aftur þeirra mögnuðu tilþrifa sem náðust á mynd.