Fara í efni

N1 mótið í beinni á KA-TV

Við minnum á að allir leikir á velli 8 eru í beinni á KA-TV í boði N1
Fréttir
03.07.2026

Við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með hvort ykkar lið fái leik á velli 8 en KA-TV sýnir alla leiki beint frá þeim velli. Við gerum okkar besta að dreifa liðum sem best á völlinn en því miður er ekki hægt að lofa öllum liðum leik á vellinum.

Fái ykkar lið leik á velli 8 er eina vitið að skrifa upp nöfn og númer leikmanna liðsins og koma þeim upplýsingum á strákana í útsendingarbílnum sem liggur við völl 8 svo unnt sé að lýsa leiknum með nöfnum leikmanna.

SMELLTU HÉR TIL AÐ OPNA KA-TV RÁSINA

Til baka í yfirlit