Fara í efni

N1 mót drengja fer fram 1.-4. júlí 2026

Skráning er hafin á N1 mót drengja sumarið 2026!
Fréttir
12.05.2026

N1-mótið er stærsta yngriflokkamót landsins þar sem öflugir strákar í 5. flokki leika listir sínar. KA leggur mikinn metnað í umgjörð mótsins og má þar nefna heitar máltíðir, bíóferð, sundferðir, gisting og glæsileg kvöldskemmtun.

Mótið hefst klukkan 12:00 á miðvikudeginum og lýkur með úrslitaleikjum á laugardeginum. Forkeppni er leikin á miðvikudeginum til að fá sem flesta jafningjaleiki á mótinu. Keppt er um öll sæti og fá því öll lið jafn marga leiki.

  • Spilaðir eru um 1.000 leikir á mótinu
  • Stór kvöldskemmtun á föstudeginum
  • Allir þátttakendur fá veglega gjöf frá N1
  • Gist er í skólum í nágrenni við KA svæðið
  • Frítt í bíó og frítt í sund alla dagana
  • Heitar máltíðir alla dagana
  • Sýnt verður beint frá mótinu á KA-TV
  • Keppt er í 9 mismunandi deildum
  • Spiluð er forkeppni á miðvikudeginum
  • Leiktími er 2 x 15 mínútur
  • Leiktími í forkeppni er 2 x 12 mínútur
  • Spilaður er 7 manna bolti
  • Verðlaun fyrir 1-3 sæti í hverri deild
  • Ýmis einstaklingsverðlaun

Þjóðsöngur Íslands er leikinn fyrir úrslitaleiki mótsins sem skapar eftirminnilega stemningu

Þátttökugjald er 14.500 krónur á hvert lið sem félag skráir til leiks og skal tilkynna fjölda liða til mótsstjórnar fyrir 1. febrúar, eindagi þátttökugjalds er einnig 1. febrúar 2026.

Mótið takmarkast við ákveðinn fjölda liða og hvetjum við því liðin til að skrá sig fyrr en seinna.

Mótsgjald fyrir hvern þátttakanda er 34.500 krónur og er eindagi mótsgjalds 1. maí 2026. Þátttakendur eru leikmenn, þjálfarar og liðsstjórar. Hvert lið þarf að hafa að minnsta kosti einn liðsstjóra.

Til baka í yfirlit