Dagskrá
1.–4. júlí 2026
N1 mót KA fer fram á Akureyri dagana 1.–4. júlí 2026. Mótið er ætlað drengjum í 5. flokki og sameinar fjóra daga af fótbolta, samveru og skemmtun.
Hér má finna yfirlit yfir dagskrá mótsins, matartíma, fundi og aðrar mikilvægar upplýsingar fyrir lið, þjálfara og fararstjóra. Lið eru beðin um að skoða leikjadagskrána vel og velja matartíma sem hentar miðað við leiki liðsins.
Sundferð innifalin á öllum mótsdögum
Innifalið í mótsgjaldi N1 mótsins er frítt aðgengi alla keppnisdagana í Sundlaug Akureyrar. Til að komast frítt í sund ber þátttakendum að sýna armbandið sitt. Ætlast er til að liðsstjóri fylgi hverju liði í sund og taki ábyrgð á hópnum á meðan sundferðinni stendur.
Opnunartími sundlaugarinnar:
Miðvikudag til föstudags 6:45 - 21:00
Laugardag 8:00 - 21:00
Athugið að mikil örtröð getur myndast í sundlauginni og hugsanlega þurfa starfsmenn sundlaugarinnar að hleypa inn í laugina í “hollum”.
Miðvikudagur 1. júlí
Kl. 10:30 – Afhending mótsgagna hefst
Forsvarsmenn liðanna sækja armbönd og mótsgjafir í KA-heimilið. Armböndin gilda fyrir þátttakendur, fararstjóra og þjálfara meðan á mótinu stendur.Lið koma sér fyrir í gistiaðstöðu.
- Kl. 12:00 – Fyrstu leikir hefjast
- Kl. 17:00–20:00 – Kvöldmatur
- Kl. 21:30 – Síðustu leikjum lýkur
- Kl. 22:30 – Fararstjórafundur í KA-heimilinu
Mælst er til þess að að minnsta kosti einn forsvarsmaður frá hverju liði mæti á fararstjórafundinn.
Fimmtudagur 2. júlí
- Kl. 07:00–09:30 – Morgunverður
- Kl. 08:30 – Fyrstu leikir hefjast
- Kl. 11:30–14:00 – Hádegismatur
- Kl. 17:00–20:00 – Kvöldmatur
- Kl. 19:00 – Síðustu leikjum lýkur
- Kl. 21:00 – Fararstjórafundur í KA-heimilinu
Föstudagur 3. júlí
- Kl. 07:00-09:30 – Morgunverður
- Kl. 08:30 – Fyrstu leikir hefjast
- Kl. 11:30–14:00 – Hádegismatur
- Kl. 17:00–20:00 – Kvöldmatur
- Kl. 19:55 – Síðustu leikjum lýkur
- Kl. 20:30 – Kvöldskemmtun í Höllinni
Á kvöldskemmtuninni verða fjölbreytt skemmtiatriði og myndband mótsins verður sýnt.
Laugardagur 4. júlí
- Kl. 07:00–09:30 – Morgunverður
- Kl. 08:00 – Fyrstu leikir hefjast
- Kl. 11:30–14:00 – Hádegismatur
- Kl. 16:30 – Úrslitaleikjum lýkur
Mótsgjald og greiðsla
Aðeins þeir sem hafa greitt mótsgjald fá armband og teljast fullgildir þátttakendur á mótinu. Fjöldi þátttakenda sem greiðir mótsgjald er einnig lagður til grundvallar þegar gistirými er skipulagt og matur pantaður. Mótsgjaldið skal greiða eigi síðar en 10. júní 2026 inn á reikning KA:
Reikningsnúmer: 0162-26-1660
Kennitala: 510991-1849
Mikilvægt er að taka fram hvaða lið greiðslan á við um og senda greiðslukvittun á n1mot@ka.is. Fyrirspurnir varðandi greiðslur skal einnig senda á sama netfang.
Mikilvægar upplýsingar
- Gefið verður út veglegt N1 mótsblað með dagskrá, upplýsingum um mótið og öðrum fróðleik.
- Hundar eru stranglega bannaðir á KA-svæðinu. Vinsamlegast virðið bannið vegna ofnæmis og hræðslu barna við hunda.
- Þátttakendur eru beðnir um að nota aðeins einbreiðar vindsængur í gistiaðstöðu.
- Veitingasala verður í KA-heimilinu.
- Aðstandendur eru beðnir um að gefa leikmönnum næði til að njóta leikjanna og sýna háttvísi í hvívetna.
- Áhorfendur og fylgismenn liða mega ekki standa inni á völlunum meðan leikir fara fram.