Vellirnir
KA-svæðið
Alls eru 12 vellir á KA-svæðinu og er leikið alla dagana á völlunum en allir úrslitaleikir á laugardegi fara fram á KA-svæðinu. Þá er matsalur mótsins í íþróttasal KA-Heimilisins en allar máltíðir á mótinu fara þar fram.

Akureyrarvöllur
Vellir 13-17 eru á Akureyrarvelli sem er gamli keppnisvöllur KA-liðsins og er við miðbæinn. Keppt verður á þeim bæði miðvikudag og fimmtudag.
